Frá vordögum 2014 mun orgelsmiðjan bjóða gesti velkomna. Fræðslusýning og myndband veita innsýn í undrarheim orgelsmíða. Stokkseyri er jafnframt vagga tónlistar á Íslandi. Verið hjartanlega velkomin og fylgist með vinnu orgelsmíðameistarans og starfsmanna hans á verkstæðinu. Nokkur hljóðfæri eru á staðnum til sýnis og oftast erum við með hljóðfæri til sölu. Opnunartími er á virkum dögum kl. 10:00-17:00 allan ársins hring. Helgaropnun eftir samkomulagi. Aðgangseyrir. Sértilboð fyrir hópa. Vinsamlegast pantið hópaheimsóknir með smá fyrirvara. Reglulega fara fram tónleikar í orgelsmiðjunni. Vinsamlegast fylgist með auglýsingum hér á síðunni og í fjölmiðlum.Velkomin í orgelsmiðjuna
Tónleikar í orgelsmiðjunni
Comments are closed.